Erlent

Ruslið safnast upp í Árósum

Sorphirðumenn í Árósum í Danmörku hafa verið í verkfalli í rúmar tvær vikur til að mótmæla því að tveir langveikir félagar þeirra hafa fengið hótanir um uppsögn.

Ruslið hefur safnast upp og er farið að valda verulegum vandræðum í borginni.

Frá þessu er skýrt á vefsíðum danska dagblaðsins Politiken og í fleiri dönskum fjölmiðlum.

Sorphirðumennirnir í Árósum segjast hafa óskoraðan stuðning félaga sinna um alla Danmörku og hóta því að verkfallið geti breiðst um allt land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×