Lítil hreyfing í átt að sátt 20. febrúar 2007 03:15
Þríhliða fundur Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, fór fram í Jerúsalem í gær, en vonir sem fyrir fram höfðu verið bundnar við að hann kynni að marka nýjan áfanga í friðarumleitunum brugðust. Fundurinn stóð yfir í hálfa aðra klukkustund og að honum loknum ávarpaði Rice fréttamenn stuttlega. Hún greindi frá því að Olmert og Abbas hefðu skipst á skoðunum um framvinduna í stjórnmálunum og ákveðið að hittast aftur. Hvorki Olmert né Abbas tóku þátt í blaðamannafundinum með Rice. Hún svaraði heldur ekki spurningum eftir að hafa flutt ávarpið. Síðar lét Olmert hafa eftir sér að hann og Abbas hefðu orðið ásáttir um að halda opnum samskiptum sín í milli, „sem miðuðu að því fyrst og fremst að bæta lífsskilyrði palestínsks almennings á hinum ýmsu sviðum, og að sjálfsögðu að palestínska heimastjórnin héldi áfram baráttu gegn hryðjuverkum - í reynd - til að stöðva hryðjuverk með öllu." Þeir Abbas og Olmert ræddu einnig að vopnehléssamkomulag á Gazasvæðinu, sem gert var fyrir þremur mánuðum, yrði einnig látið ná til Vesturbakkans, að því er Saeb Erekat, samningamaður Palestínumanna, greindi frá. Það dró úr væntingum til fundarins að bæði Ísraelar og Bandaríkjamenn höfðu lýst nýgerðu samkomulagi palestínsku fylkinganna í Hamas og Fatah um að semja um myndun þjóðstjórnar sem ófullnægjandi. Krafan er sú að palestínska stjórnin, hvernig sem hún er samsett, viðurkenni Ísraelsríki og fyrri friðarsamninga og afneiti ofbeldi. Öll þrjú, Abbas, Olmert og Rice, ítrekuðu að fast skyldi haldið við leiðarvísinn til friðar, sem hefur að markmiði að koma á varanlegum friðarsamningi og stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna, og voru sammála um að lausn á deilunni myndi ekki „spretta úr ófriði," að sögn Rice. Ákveðið var að halda annan slíkan leiðtogafund, en ekki hvenær hann færi fram. Rice sagðist gera ráð fyrir að snúa aftur fljótlega.
Mest lesið Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Innlent „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Erlent Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Innlent Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Innlent Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Erlent Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Veður Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar öryrkja Innlent „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Innlent Fleiri fréttir Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Fluttu kjarnakljúf með flugvél í fyrsta sinn „Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Sjá meira