Rússar kvarta vegna óeirðanna í Tallin 29. apríl 2007 08:30
Vladimir Pútín, forseti Rússlands, kvartaði í gær við Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, sem fer með forsæti í Evrópusambandinu, yfir framgöngu eistneskra stjórnvalda við að bæla niður mótmæli Eista af rússneskum uppruna í Tallin, höfuðborg Eistlands, síðustu daga. Rússar fullyrða að maður sem lést í óeirðunum hafi verið Rússi, búsettur í Eistlandi. Eistnesk stjórnvöld bjuggu sig í gær undir þriðju nóttina af óeirðum. Um sex hundruð manns voru handteknir og um hundrað slösuðust þegar óeirðir brutust út í borginni í fyrrakvöld, annað kvöldið í röð. Alls hafa um þúsund manns verið handteknir, á annað hundrað hafa slasast og einn hefur látist. Átökin blossuðu upp eftir að eistnesk stjórnvöld fjarlægðu sovéskan minnisvarða um sigur Rauða hersins yfir nasistum, bronsstyttu af hermanni sem staðið hefur í hálfa öld, úr miðborginni. Undir styttunni voru nokkrir hermenn grafnir, og stóð til að færa líkamsleifar þeirra. Innan við þriðjungur íbúa landsins er af rússneskum uppruna, og eru þeir um áttatíu prósent mótmælendanna. Aðrir Eistar telja flestir minnisvarðann minna á áralanga kúgun Sovétríkjanna yfir Eistum. Drukkin ungmenni hafa kastað grjóti og eldsprengjum í vígbúna lögreglumenn, brotið og bramlað flest sem á vegi þeirra verður og látið greipar sópa í verslunum í borginni. Til að sporna við mótmælunum lagði eistneska ríkisstjórnin í gær bann við áfengissölu fram yfir mánaðamót. Þótt það hafi dregið úr ölvun, kynti það heldur undir reiði flestra mótmælenda. Þeir af rússneskum uppruna reiddust þar sem þeir töldu bannið lýsa því viðhorfi stjórnvalda að það væri aðeins ölvun, en ekki reiði þeirra sem væri valdur óeirðanna. Margir ungir Eistar urðu einnig bálvondir út í Rússana fyrir að hafa orðið til þess að þeir gætu ekki haft áfengi um hönd við skemmtanir í gærkvöldi. Þá reistu stjórnvöld tjald yfir torgið þar sem styttan hafði staðið, og sendu hundruð þúsunda símskilaboða á landsmenn þar sem þeir voru hvattir til að halda sig innandyra.
Mest lesið Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Innlent Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent Lausir endar í Edition-málinu Innlent „Dylgjur um menntastig“: Túlkun afbrotatölfræði innflytjenda þarfnist þekkingar Innlent Sambandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning Innlent Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Erlent Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Erlent Sólveig Anna furðar sig á kjörum borgarstjóra Innlent Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Sjá meira