Logi: Jónas var efstur á óskalistanum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. nóvember 2007 16:02 Logi Ólafsson með þeim Rúnari Kristinssyni og Jónasi Guðna Sævarssyni í KR-heimilinu í dag. Mynd/E. Stefán
Logi Ólafsson, þjálfari KR, segir að Jónas Guðni Sævarsson passi vel inn í áætlanir sínar fyrir lið KR-inga og leik liðsins á næstu leiktíð. „Það hafa horfið úr okkar röðum miðjumenn að undanförnu og settum við Jónas efstan á okkar óskalista,“ sagði Logi á blaðamannafundi í dag þar sem Jónas Guðni var kynntur til sögunnar sem leikmaður KR. „Ég hef áður sagt að við viljum gera tilraun til þess að leika samkvæmt 4-4-2 leikkerfinu og lítum sérstaklega til Jónasar í því sambandi. Við þurfum menn með mikla hlaupagetu, menn sem geta haldið boltanum hjá sér, varist og reynt að hitta á menn í röndóttu treyjunum. Við teljum Jónas mjög hæfan til þeirra verka.“ Logi sagði enn fremur að það væri enginn hæfari en Rúnar Kristinsson til að hjálpa Jónasi til að bæta sig sem knattspyrnumann en Rúnar mun sjá um einstaklingsþjálfun miðvallar- og sóknarleikmanna KR-liðsins. Hann vildi ekki gefa upp markmið liðsins fyrir næstu leiktíð en sagði engu að síður að KR eigi að vera í baráttunni í efri hluta deildarinnar. „Við erum ásáttir um að vera ekki með neinar stórar yfirlýsingar. Við vitum enga betri aðferð en að undirbúa okkur vel fyrir næsta mót og sú aðferð mun vonandi skila liðinu í baráttuna í efri hluta deildarinnar.“ Aðspurður sagði hann að kaupverðið væri ekki uppgefið en Jónas átti eftir eitt ár af samningi sínum við Keflavík. „Ég get þó sagt það hér að KR-ingar eiga góða menn að í þjóðfélaginu.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gaf heila eiginmannsins og hann var með CTE Sport Metfjöldi norrænna kylfinga á Masters og Ísland gæti bæst í hópinn Golf „Í hausnum á mér er ég orðinn þessi maður“ Sport Sveindís fyrst til að hljóta verðlaun vestanhafs Fótbolti „Áður en ég hætti var Gísli á leiðinni í Breiðablik“ Íslenski boltinn Isak í hópnum í París Enski boltinn „Allt of margir leikmenn sem þurfa að stíga upp“ Handbolti Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Enski boltinn Goðsögn fallin frá Fótbolti Sjáðu Harry Kane skora eftir tuttugu sekúndur á móti Real Fótbolti Fleiri fréttir „Áður en ég hætti var Gísli á leiðinni í Breiðablik“ „Dreymir að minnsta kosti um Evrópu“ Besta-spáin 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Keflvíkingur keppti í Squid Game KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Þroskamerki fyrir KR: „Það sem hefur vantað er andlegur styrkur „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Sjá meira