Erlent

Verði veitt hæli í Danmörku

Danskir hermenn í Írak. Ótti um örlög túlka.
Danskir hermenn í Írak. Ótti um örlög túlka. MYND/AP

Nú þegar Danir eru að undirbúa brottför hermanna sinna frá Suður-Írak sætir ríkisstjórnin sívaxandi þrýstingi að veita íröskum túlkum og öðrum sem aðstoðuðu dönsku hermennina hæli í Danmörku.

Örlög 21 Íraka, sem þetta á við um, eru nú ákaft rædd í Danmörku og endurspeglar sú umræða þá siðfræðilegu klípu sem þau lönd standa frammi fyrir sem kalla herlið heim frá Írak: Er í lagi að skilja eftir heimamenn sem tóku þá áhættu að aðstoða erlendu hermennina?

„Lausn í máli þeirra verður tilbúin í næstu viku,“ boðaði Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×