Erlent

Sögusagnir um trúskipti Blairs

Vel fór á með Blair og páfa er þeir hittust í byrjun júní í fyrra.
Vel fór á með Blair og páfa er þeir hittust í byrjun júní í fyrra. MYND/AP

Fundur Tonys Blair, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, með Benedikt XVI páfa í Róm um helgina, hefur gefið sögusögnum um að hann sé að íhuga að gerast rómversk-kaþólskur byr undir báða vængi.

Dagblaðið The Guardian hafði í gær eftir ónafngreindum heimildamönnum að boð erkibiskupsins af Westminster, Cormacs Murphy-O‘Connor kardínála, til Blair-hjónanna að þiggja með sér hádegisverð í fornum prestaskóla fyrir enska kaþólikka í Róm væri merki um að Blair væri í þann mund að ganga kaþólsku kirkjunni á hönd.

Skrifstofa Blairs ítrekaði í yfirlýsingu að hann væri enn í ensku biskupakirkjunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×