Erlent

Forsetar rækta vinskapinn

Þetta fólk reyndi að nálgast fundarstaðinn í Kennebunkport til að hafa í frammi mótmæli gegn stefnu beggja leiðtoga.
Þetta fólk reyndi að nálgast fundarstaðinn í Kennebunkport til að hafa í frammi mótmæli gegn stefnu beggja leiðtoga. fréttablaðið/ap
Bandaríkin, AP Vladimír Pútín Rússlandsforseti kom í gærkvöld til Kennebunkport í Maine, þar sem hann hitti George W. Bush Bandaríkjaforseta í sumarhúsi í eigu George Bush eldri. Vonir stóðu til að hið nána andrúmsloft sem fundarstaðurinn skapaði auðveldaði leiðtogunum að leysa úr þeim vaxandi ágreiningi sem orðið hefur vart við á milli ríkisstjórna beggja landa á síðustu mánuðum og misserum.

Við brottförina frá Moskvu gat Pútín þess hve „vinsamleg“ persónuleg tengsl sín væru við Bush, og það ætti að lofa góðu um að fundurinn yrði árangursríkur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×