Erlent

Ætlað að styrkja völd Abbas

Tugþúsundir palestínskra ríkisstarfsmanna munu í þessari viku fá í fyrsta sinn í meira en ár greidd út full laun sín, eftir að ísraelsk yfirvöld afhentu bráðabirgðastjórn Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, út palestínskt skattfé sem hafði verið fryst á reikningum í Ísrael.



Þetta fé hafa ísraelsk yfirvöld innheimt fyrir hönd palestínskra yfirvalda en neitað að afhenda palestínsku stjórninni sem Hamas-samtökin fóru fyrir, en henni vék Abbas frá völdum eftir að Hamas-liðar tóku völdin á Gaza með valdi í júní. Ísraelsstjórn sagði andvirði nærri 7,5 milljarða króna hafa verið millifærða í gær og palestínskir embættismenn staðfestu það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×