Erlent

Ísabella Henríetta Ingiríður Margrét

Prinsessan unga var hin værasta og litli prinsinn Kristján var hinn prúðasti á meðan á athöfninni stóð.
Prinsessan unga var hin værasta og litli prinsinn Kristján var hinn prúðasti á meðan á athöfninni stóð. fréttablaðið/ap

Danmörk, AP Ísabella Henríetta Ingiríður Margrét var nafnið sem dóttir Friðriks krónprins af Danmörku og Maríu Elísabetar krónprinsessu var gefið er hún var skírð við hátíðlega athöfn í kapellu Fredensborgarhallar á Sjálandi í gær.



Prinsessan unga, sem fæddist þann 21. apríl, er annað barn krónsprinshjónanna. Hún er nú þriðja í ríkiserfðaröðinni á eftir föður sínum og eldri bróður, hinum tveggja ára gamla Kristjáni prins.

Látin móðir Maríu Elísabetar hét Henríetta, móðuramma Friðriks hét Ingiríður og Margrétarnafnið er í höfuðið á ömmunni, Margréti Þórhildi drottningu. María Elísabet tjáði fréttamönnum að þau hjónin hefðu síðan komið sér saman um nafnið Ísabellu, sem ekki er í höfuðið á neinum.

Skírnarathöfninni var sjónvarpað beint í Danmörku. Mikill mannfjöldi safnaðist saman við kapelluna til að hylla fjölskylduna ungu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×