Erlent

Yfirsáust tíu þúsund evrur

MYND/Getty
Þjófur sem sem stal skjalatösku í Dusseldorf í gær, tók ekki eftir því að í henni voru tíu þúsund evrur, eða rúmar 860 þúsund krónur, og henti henni.

,,Ég gæti trúað að hann yrði svekktur þegar hann kemst að því" sagði talsmaður lögreglu í borginni.

Íranskur viðskiptamógull sem átti töskuna, tilkynnti um hvarf hennar þegar hann var að stíga um borð í flugvél á flugvellinum í Dusseldorf. Lögregla fann töskuna stuttu síðar. Búið var að rífa allt úr henni, en þjófnum hafði yfirsést tvö umslög með peningunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×