Erlent

Þjófarnir stálu milljón á striga

Peningaseðlar límdir á striga, verk norska listamannsins Jan Christensen, vakti ekki bara athygli listunnenda á landsvísu heldur einnig þjófa sem brutust inn í sýningarsalinn og höfðu verkið með sér á brott seinnipart sunnudags.

Christensen sagðist hafa verið hræddur um að þetta kæmi fyrir en peningaseðlarnir sem hann notaði í verkið komu úr hans eigin vasa og voru samtals rúm milljón króna. Verkið, sem var tryggt, hafði verið selt norskum listunnanda. Christiansen hafði ekki ákveðið hvort hann myndi gera annað verk sömu gerðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×