Erlent

Deilur um ísbjarnaveiðar á Grænlandi

MYND/Getty
Gert Ignatiussen, sem á sæti í bæjarstjórnin Tasiilaq á Grænlandi, hefur gagnrýnt opinberlega kvóta til ísbjarnaveiða fyrir Austur-Grænland. Álítur hann að kvótinn, sem telur 50 dýr á ári, sé full rýr fyrir byggðarlög þessa svæðis þar sem tekjumöguleikar séu færri en sunnar á landinu; 3-4 geti skipt sköpum fyrir afkomu byggðarinnar. Í viðtali við Grænlenska útvarpið hvetur hann Landstjórnina til að endurskoða lögin, en bætir reynar við að yfirvöld hafi ekki þá vísindalegu þekkingu sem sé forsenda þess að ákvarða ísbjarnakvótann. Frá þessu er greint á skip.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×