Erlent

Flóð ógna íbúum Sambíu

Hátt í tvær milljónir íbúa Sambíu í Suður-Afríku eru án matar eftir mikil flóð sem geisað hafa þar í landi. Þá eru þúsundir án heimila og maísuppskera í yfir helmingi landsins er í rúst. Rupiah Banda, aðstoðarforseti landsins, hefur lýst yfir neyðarástandi í landinu og óskar eftir tafarlausri matvælaaðstoð.

Miklar rigningar hafa gengið yfir Suður Afríku að undanförnu og valdið skemmdum víða, meðal annars á skólum og sjúkrastofnunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×