Erlent

Hjólamótmæli kæfð í fæðingu

Hjólreiðahópferðin endaði við næstu eftirlitsstöð.
Hjólreiðahópferðin endaði við næstu eftirlitsstöð. MYND/AP

Ísraelsher stöðvaði hjólreiðaferð um 400 Ísraela, Palestínumanna og annarra á Vesturbakkanum rétt eftir að ferðin hófst á laugardag.

Ferðin var skipulögð af kristilegri ungliðahreyfingu sem friðsamleg mótmæli gegn veru Ísraela á Vesturbakkanum, sérstaklega eftirlitsstöðvum þeirra sem staðsettar eru víðs vegar um Vesturbakkann.

Lagt var upp frá Ramallah og lauk ferðinni við fyrstu eftirlitsstöðina nokkrum mínútum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×