Erlent

Naypyidaw ný höfuðborg Myanmar

Getty Images

Herforingjastjórnin í Myanmar, sem áður hét Búrma hefur ákveðið að Rangoon verði ekki lengur höfuðborg landsins heldur ný borg, Naypyidaw sem verið er að byggja um 500 kílómetra norður af gömlu höfuðborginni. Ekki er ljóst hver ástæðan er fyrir þessari breytingu.

Naypyidaw er byggð af miklum efnum og er ólíkt framúrstefnulegri og glæsilegri en það sem flestir Myanmarar þurfa að búa við. Gróf mannréttindabrot hafa tíðkast í landinu í stjórnartíð herforingjastjórnarinnar og stjórnarandstöðuflokkar til að mynda bannaðir. Einn helsti leiðtogi þeirra, nóbelsverðlaunahafinn Aung San Suu Kyi hefur mátt sitja í stofufangelsi árum saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×