Erlent

Girntist þriggja ára gamalt barn

Geðlæknir frá Sádi-Arabíu var á föstudag dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að ferðast til Bandaríkjanna með það að markmiði að hafa mök við barn. Í gegnum internetið komst Nabil Al Rowais í samband við mann sem ætlaði að veita honum aðgang að þriggja ára dóttur sinni.

Maðurinn var útsendari lögreglu og Rowais var handtekinn þegar hann kom á áfangastað.

Rowais samdi um níu ára fangelsisvist. Dómari stytti vistina, þar sem hann taldi Rowais stafa hætta af öðrum föngum vegna eðlis glæpsins, þjóðernis síns og lélegra líkamsburða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×