Erlent

Tíu fórust eftir að atriði fór úr böndum

Eitt fórnarlambanna flutt af vettvangi.
Eitt fórnarlambanna flutt af vettvangi. MYND/AP

Tíu manns fórust í eldsvoða á nektarstað í Moskvu í Rússlandi aðfaranótt laugardags.

Að sögn lögreglu í Moskvu var það barþjónn staðarins sem kom eldinum af stað. Hann kveikti í eldfimum vökva sem var hluti af einu sýningaratriðinu en missti síðan stjórn á eldinum með fyrrgreindum afleiðingum.

Fjórir voru fluttir slasaðir á sjúkrahús en alls voru um 150 manns á staðnum þegar eldurinn braust út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×