Söguleg sátt á N-Írlandi 27. mars 2007 06:00 Sambandssinnar veifa fána Bretlands og Norður-Írlands þegar þeir ganga í fylgd hermanna sem reyna að verja þá gegn grjótkasti frá þjóðernissinnum í Belfast árið 2003. MYND/nordicphotos/afp
norður-írland, ap Leiðtogar stærstu stjórnmálaflokka mótmælenda og kaþólikka á Norður-Írlandi náðu í gær samkomulagi á sögulegum fundi um að mynda heimastjórn 8. maí næstkomandi. Ian Paisley, leiðtogi Lýðræðissinnaða sambandsflokksins, og Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, tilkynntu um samkomulagið á blaðamannafundi í gær í þinghúsinu sem staðsett er í Stormont- kastala í höfuðborginni Belfast. Fundurinn var sögulegur vegna þess að leiðtogarnir hafa aldrei fundað áður augliti til auglitis. Paisley hefur hingað til neitað að ræða beint við Adams vegna tengsla Sinn Fein við hryðjuverkasamtökin Írska lýðveldisherinn (IRA) sem hafa lagt niður vopn. „Við megum ekki leyfa réttlátri óbeit okkar á hryllingi og hörmungum fortíðarinnar verða hindrun í vegi þess að skapa börnum okkar betri og stöðugri framtíð,“ sagði Paisley á fundinum. Adams sagði mótmælendur og kaþólikka hafa átt í átökum í norðausturhluta Írlands öldum saman en að þetta samkomulag „tákni upphaf nýs tímabils í stjórnmálum á þessari eyju“. Lýðræðissinnaði sambandsflokkurinn, flokkur mótmælenda, hlaut meirihluta atkvæða í kosningunum 7. mars og Sinn Fein, flokkur kaþólikka, var með næstflest atkvæði. Í kjölfar kosninganna gáfu bresk stjórnvöld flokkunum frest til gærdagsins til að mynda heimastjórn ella yrði þingið leyst upp. Eftir að tilkynnt var um samkomulagið í gær lýstu bresk stjórnvöld yfir að þau myndu leggja fram frumvarp til flýtiafgreiðslu um að þing Norður-Írlands, sem á að skipa tólf manna stjórn, geti starfað fram til 8. maí. Þingið kom í fyrsta skipti saman eftir kosningar í gær. Forsætisráðherrar Bretlands og Írlands, Tony Blair og Bertie Ahern, fögnuðu samkomulaginu. „Allt sem við höfum unnið að undanfarin tíu ár hefur verið undirbúningur fyrir þessa stund,“ sagði Blair. Ahern sagði að hann og Blair myndu gæta þess að lokaskrefin yrðu stigin í friðarferlinu.
Mest lesið Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Innlent Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Innlent Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Innlent Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Erlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Erlent Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Innlent Fleiri fréttir Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Sjá meira