Erlent

Útgjöld aukin til varnarmála

Getty Images

Wen Jiabao forsætisráðherra Kína tilkynnti í dag að Kínverjar ætli að verja 18 prósent hærri fjárhæð til varnarmála þetta árið en á síðasta ári þegar hann setti kínverska þingið. Þá lofaði Jiabao einnig auknum stuðningi við mennta- og heilbrigðiskerfi. Talið er að varnarmálaútgjöldin aukist svo mjög vegna þess að Bandaríkjamenn hafa samið við útlagastjórnina á Tævan, erkióvini kínverskra stjórnvalda, um að selja þeim 450 flugskeyti á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×