Slúðrið í enska í dag Jónas Haraldsson skrifar 31. maí 2007 10:34 Scott Parker er samkvæmt slúðrinu á leið til Íslendingafélagsins West Ham. MYND/AFP
Margt er að gerjast í enska boltanum þessa daganna. Íslendingaliðið West Ham situr ekki auðum höndum og nú er sagt frá því að miðjumaður Newcastle, Scott Parker, sé á leið til liðsins. Búist er við því að samningar um það gangi í gegn strax á morgun. Og þá er Thierry Henry vitanlega orðaður við Barcelona. Hérna er samantekst BBC á slúðrinu í ensku blöðunum í dag. Félagaskiptaslúður Mark Viduka framherji Middlesbrough, sem er nú samingslaus, hefur samþykkt að ganga til liðs við Newcastle (The Sun). Miðjumaður Newcastle, Scott Parker, er við það skrifa undir hjá West Ham (Ýmsir). Arsenal eru tilbúnir að láta Thierry Henry fara en Barcelona er tilbúið að bjóða 17 milljónir punda og Samuel Eto'o í hans stað (Daily Star). Chelsea ætlar sér að selja hollenska varnarmanninn Khalid Boulahrouz til Bayern Munich fyrir 3,5 milljónir punda - helminginn af þeirri upphæð sem liðið keypti hann á (Daily Mirror). Celtic hefur sagt framherjanum Craig Beattie að hann geti yfirgefið félagið þar sem það era ð semja við leikmann Hibernian, Chris Killen (Daily Record). Derby ætlar sér að kaupa varnarmann Aston Villa, Lee Hendrie (Ýmsir). Wigan berst nú við Everton um að landa fyrirliða Sheffield United, Phil Jagielka (Daily Mirror). Birmingham er að íhuga að gera tilboð í leikmann Middlesbrough, Stuart Parnaby (The Sun). Gianni Paladini, formaður QPR, hefur sagt Fulham að það muni kosta um fimm milljónir punda að tryggja sér kantmanninn Lee Cook (Daily Star). Varnarmaður Bolton, Tal Ben Haim, gæti fylgt fyrrum stjóra sínum, Sam Allardyce, til Newcastle (The Times). Blackburn sér fram á mikla baráttu við að halda í Benni McCarthy, sem vill ekkert frekar en að spila í meistaradeildinni (The Times). Reading ætlar sér að kaupa varnarmann Watford, Danny Shittu (Daily Star). Annað slúður Brasilíska goðsögnin Jairzinho sagði að ákvörðun Steve McClaren um að velja David Beckham í enska landsliðið fyrir leikina á móti Brasilíu og Eistlandi „…brandara" (The Sun). Leikstjórnandi Brasilíu, Ronaldinho, getur ekki beðið eftir því að eyðileggja endurkomu Beckhams í enska landsliðið en liðin mætast í vináttuleik á morgun (Daily Star). Fyrrum framherji Englendinga, Trevor Francis, sem spilaði fyrir bandaríska liðið Detroit Express á áttunda áratug síðustu aldar, telur að Beckham eigi eftir að sjá eftir því að hafa gengið til liðs við LA Galaxy (Various). Framkvæmdastjóri Liverpool, Rafael Benitez, verður áfram við stjórnvölin á Anfield eftir langar viðræður við hina nýju amerísku eigendur, Tom Hicks og George Gillett (Daily Mirror). Graham Poll, sem er nú hættur að dæma í ensku úrvalsdeildinni, hefur sagt að hætt sé að ákæra þjálfara þar sem enska knattspyrnusambandið útdeili ekki nógu virkum refsingum (Daily Mail). Markvörður Manchester United og Englands, Ben Foster, gæti misst af stórum hluta af næstu leiktíð vegna hnéaðgerðar (Daily Mail). Stjóri Parma á Ítalíu, Claudio Ranieri, hefur samþykkt að verða framkvæmdastjóri Manchester City - ef yfirtaka fyrrum forsætisráðherra Taílands, Thaksin Shinawatra, gengur í gegn (Ýmsir) Jonathan Woodgate, varnarmaður Middlesbroug, fullyrðir að hann verði búinn að ná sér fyrir næsta tímabil en hann gekkst undir hnéaðgerð nýverið (Ýmsir). Enska knattspyrnusambandið ætlar sér að hefja endurskoðun á öllum leikmannakaupum eftir að félagaskiptaglugga lokar - allt frá úrvalsdeild niður í fjórðu deild (Daily Express). Fulham og Wigan eru ósátt við það að ekki verða meiri umræður um samning Carlosar Tevez hjá West Ham (Ýmsir). Milljarðamæringurinn Mike Ashley, sem ætlar sér að taka yfir Newcastle, mun funda með stjórn félagsins á föstudaginn, þrátt fyrir að stjórnarformaðurinn Freddy Shepherd verði ekki á staðnum vegna veikinda sinna (Ýmsir).
Enski boltinn Mest lesið Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira