Erlent

Stærsta sóknin frá upphafi

Afganskur hermaður leitar á farþegum í bifreið sem kom í gær til Lashkar Gah, höfuðstaðar í héraðinu Helmand í Afganistan þar sem talibanar hafa löngum átt skjól.
Afganskur hermaður leitar á farþegum í bifreið sem kom í gær til Lashkar Gah, höfuðstaðar í héraðinu Helmand í Afganistan þar sem talibanar hafa löngum átt skjól. MYND/AP

Hermenn á vegum NATO hófu á mánudaginn stórsókn á hendur herskáum talibönum í Helmand-héraði, sem er sunnan til í Afganistan. Aðgerðirnar eru þær viðamestu sem NATO hefur stjórnað í landinu frá upphafi.

Alls munu 4.500 erlendir NATO-hermenn og þúsund íraskir hermenn taka þátt í aðgerðunum, sem miða að því að „bæta öryggisástandið á svæðum þar sem tali-banskir öfgamenn, eiturlyfjasalar og erlendir hryðjuverkamenn eru nú virkir“, að því er Tom Collins ofursti, talsmaður herliðs NATO í Afganistan, sagði í gær.

„Strax og öryggisástandið batnar hefjum við uppbyggingarstarf til skemmri og lengri tíma,“ bætti hann við.

Bandaríkjaher sendi helmingi stærra lið á vettvang til Helmand-héraðs í fyrra til þess að berjast gegn herskáum uppreisnarmönnum. Collins segir ástandið nú allt annað en þá og NATO eigi auðveldara með að ná fótfestu í héraðinu heldur en Bandaríkjamenn í fyrra.

Strax í gær lést þó einn hermaður á vegum NATO í Helmand-héraði, þótt ekki hafi verið upplýst hvort hann hafi tekið þátt í þessum aðgerðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×