Finna þarf lausn án tafar á þessu ári 12. mars 2007 03:45 Abdullah fjallaði í ræðu sinni á Bandaríkjaþingi nánast eingöngu um deilur Ísraela og Palestínumanna. Á bak við hann sitja þau Dick Cheney varaforseti og Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar. MYND/AP
Abdullah Jórdaníukonungur sagði enga von til þess að lausn finnist á deilu Ísraels og Palestínumanna nema Bandaríkin beiti sér af alefli í málinu. Abdullah ávarpaði Bandaríkjaþing á fimmtudagskvöldið og hvatti þingmenn til að skapa þær aðstæður að hægt verði að koma á varanlegum friði í Mið-Austurlöndum. „Við væntum þess að þið takið að ykkur sögulegt hlutverk,“ sagði hann á fundi sameinaðs þings í Washington, og bætti við að árangur verði að sjást „ekki eftir eitt ár eða fimm ár heldur á þessu ári.“ Ræðu sína flutti hann á lýtalausri ensku og þurfti nokkrum sinnum að gera hlé á máli sínu vegna lófataks áheyrenda. Hann lagði áherslu á að bæði Ísraelar og Palestínumenn hafi gengið í gegnum miklar þjáningar, en minntist hvorki á innbyrðis deilur Palestínumanna né tilraunir Condoleezzu Rice til að koma friðarferlinu af stað á ný. „Markmiðið hlýtur að vera friður sem allir hafa ávinning af,“ sagði hann. Áður en hann hélt til Washington hafði Abdullah gagnrýnt Ísrael harðlega og sagði meginábyrgðina á ástandinu liggja hjá Ísrael. Í ræðunni forðaðist hann þó að beina spjótum sínum beint að Ísrael.
Mest lesið „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent Eric Dane er látinn Erlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök Innlent „Mjög, mjög sorglegt“ Erlent Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Erlent Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Andrew látinn laus Erlent Fleiri fréttir Eric Dane er látinn „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Sjá meira