Erlent

Kona rændi þriggja daga gömlu barni

Á eftirlitsmyndböndum má sjá konuna ganga út af sjúkrahúsinu með barnið í handtösku.
Á eftirlitsmyndböndum má sjá konuna ganga út af sjúkrahúsinu með barnið í handtösku. MYND/AP

Fjögurra daga gamalt barn fannst snemma í gærmorgun heilt á húfi í heimahúsi í Nýju-Mexíkó, daginn eftir að því var rænt af fæðingardeild á sjúkrahúsi í Texas.

Barninu, sem er drengur og hefur fengið nafnið Mychael Darthard-Dawodu, var rænt aðfaranótt laugardagsins á sjúkrahúsi í bænum Lubbock. Barnsræninginn var kona sem þóttist vera hjúkrunarfræðingur. Hún hafði komið nokkrum sinnum inn á sjúkrastofuna þar sem móðir drengsins lá ásamt drengnum og sagst þurfa að fara með drenginn vegna þess að gera þyrfti rannsóknir á honum.

Á eftirlitsmyndavélum má sjá barnsræningjann ganga út úr sjúkrahúsinu, klædd í bláar sjúkrahúsbuxur og gráa dúnúlpu með hettu yfir höfðinu. Barnið virðist hafa verið í handtösku sem hún hélt á út í rauða bifreið sem ekið var burt.



Litli drengurinn. Mychael Darthard-Dawodu heitir sá litli.MYND/AP

Barnið þjáðist af gulu sem ekki er óalgengt hjá nýfæddum börnum og var strax flutt á sjúkrahús í Clovis, bænum þar sem það fannst.

Tuttugu og eins árs gömul kona er í varðhaldi hjá lögreglunni í Clovis. Talið er að karlmaður hafi verið í vitorði með henni og hann hafi ekið rauðu bifreiðinni frá sjúkrahúsinu eftir að barninu var rænt.

Mikil leit hafði verið gerð að barninu bæði í Texas og Nýju-Mexíkó, og höfðu lögreglunni borist fjölmargar vísbendingar frá fólki í báðum ríkjunum.

Stjórnendur sjúkrahússins í Lubbock sögðu allt starfsfólk bera nafnspjöld, en ekki var vitað hvort barnsræninginn var með nafnspjald þegar ránið var framið.

„Ég held að starfsfólkið hjá okkur hafi aldrei séð hana," sagði Gwen Stafford, einn af yfirmönnum sjúkrahússins. Konan gekk út af sjúkrahúsinu með barnið klukkan 1.20 aðfaranótt laugardags. Innan fimmtán mínútna var móðirin búin að láta vita að barnið væri horfið.

Þetta er í annað skiptið á innan við ári sem barni er rænt frá sjúkrahúsi í Lubbock. Í júní á síðasta ári var fjögurra daga gömlu stúlkubarni rænt frá móður sinni á öðru sjúkrahúsi. Barnsræninginn þá var einnig kona, en hún hafði komið í heimsókn til móðurinnar. Lögreglunni bárust fljótlega ábendingar sem leiddu til þess að ræninginn náðist daginn eftir og var barnið heilt á húfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×