Erlent

Talibanar myrtu einn gíslinn

Hópur fólks kom saman í Seúl í gær til að krefjast þess að suðurkóreskir hermenn verði kallaðir heim frá Afganistan.
fréttablaðið/AFP
Hópur fólks kom saman í Seúl í gær til að krefjast þess að suðurkóreskir hermenn verði kallaðir heim frá Afganistan. fréttablaðið/AFP

Herskáir talibanar sem rændu 23 Suður-Kóreumönnum fyrir viku myrtu einn gíslanna í gær áður en átta gíslanna var sleppt. Lögregla fann líkið sem var af karlmanni sem hafði verið skotinn tíu sinnum í höfuð, bringu og maga.



Fyrr um daginn sagði meintur talsmaður hópsins að gíslinn hefði verið skotinn vegna þess að stjórnvöld í Afganistan hefðu ekki fallist á kröfur þeirra um að sleppa félögum þeirra úr fangelsi. Lögreglumaður sem vildi ekki láta nafns síns getið sagði hins vegar að vígamennirnir hefðu sagt sér að gíslinn hafi verið veikur og ógöngufær og því hafi hann verið skotinn.



Gíslarnir, sem var sleppt, tveir karlar og sex konur, voru fluttir til bandarískrar herstöðvar í Ghazni-héraði. Afgani sem tók þátt í að semja um lausn gíslanna sagði að háar upphæðir hefðu verið greiddar fyrir. Suður-Kóreumönnunum var rænt á fimmtudaginn fyrir viku þar sem þeir voru á ferð í rútu í Ghazni-héraði. Af 23 gíslum voru átján konur.



Undanfarna viku hefur 26 erlendum ríkisborgurum verið rænt í Afganistan. Í kjölfarið hafa afgönsk stjórnvöld bannað útlendingum sem búa í höfuðborginni Kabúl að yfirgefa borgina án þess að fá sérstakt leyfi frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×