Erlent

Árásin í Glasgow tengist bílsprengjunum í Lundúnum

MYND/AFP

Talsmaður lögreglunnar í Glasgow sagði á blaðamannafundi sem nú stendur yfir vegna hryðjuverkaárásarinnar á Glasgow flugvöll, að líkindi árásarinnar við misheppnuðu árásirnar í Lundúnum bendi til þess að atvikin tengist.

Annar tilræðismannana er alvarlega slasaður á sjúkrahúsi í Glasgow en rýma þurfti spítalann fyrr í dag þegar uppgötvaðist að tilræðismaðurinn var með „grunsamleg" tæki innanklæða. Ekki hefur verið staðfest hvort um sprengju hafi verið að ræða. Hinn tilræðismaðurinn er í haldi lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×