Erlent

Réttur Guantanamo-fanga

Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað í gær, þvert á vilja ríkisstjórnar George W. Bush forseta, að taka aftur til skoðunar hvort fangar í herfangelsinu við Guantanamo-flóa á Kúbu hafi rétt á að leita til bandarískra borgaralegra dómstóla til að fá úr því skorið hvort ótakmörkuð fangelsun þeirra, án dóms, sé lögleg.



Ríkisstjórnin heldur því fram að ný lög svipti borgaralega dómstóla lögsögu í málum Guantanamo-fanganna.



Í apríl síðastliðnum felldi rétturinn þveröfugan úrskurð í sama máli, en tók þá fram að hann kynni að endurskoða hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×