Tottenham og Blackburn skildu jöfn 10. maí 2007 21:03 Benni McCarthy skoraði sitt 17. mark fyrir Blackburn í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Tottenham er í vænlegri stöðu með að tryggja sér sjálfkrafa þáttökurétt í Evrópukeppni félagsliða á næsta tímabili eftir 1-1 jafntefli við Blackburn á heimavelli sínum í kvöld. Benni McCarthy kom gestunum yfir eftir 32 mínútur eftir laglega sendingu frá Morten Gamst Pedersen, en Jermain Defoe jafnaði fyrir heimamenn í síðari hálfleik. Christopher Samba fékk gullið tækifæri til að koma Blackburn 2-0 yfir en skalli hans hafnaði í þverslánni. Robbie Keane var nálægt því að stela sigrinum fyrir Tottenham þegar hann fékk úrvalsfæri í uppbótartíma, en skaut í stöngina. Jason Roberts lét reka sig af velli undir lokin fyrir að rífa kjaft við Rob Styles dómara. Miðjumaðurinn Hossam Ghaly gæti vel hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Tottenham í kvöld. Hann kom inn sem varamaður í fyrri hálfleik fyrir Steed Malbranque sem meiddist - en honum var skipt af velli á ný á 60. mínútu eftir afleita frammistöðu. Hann lét skoðun sína á skiptingunni í ljós með því að klæða sig úr treyjunni - kasta henni í átt að knattspyrnustjóranum og storma inn í búingsherbergi. Bæði lið höfðu augastað á Evrópusætinu fyrir leikinn þar sem Blackburn þurfti á sigri að halda í tveimur síðustu leikjum sínum til að tryggja sér þátttökurétt. Sá möguleiki er úr sögunni eftir jafnteflið í kvöld, en Tottenham þarf nú tvö stig í viðbót til að tryggja sér Evrópusætið og á heimaleik við Manchester City á sunnudaginn.
Enski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Fleiri fréttir Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjá meira