Erlent

Kristjaníubúar hafa enn ekki tekið afstöðu til tilboðs ríkisins

Íbúar fríríkisins Kristjaníu í Kaupmannahöfn hafa enn ekki tekið ákvörðun um hvort taka eigi tilboði ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu á svæðinu. Fjórir dagar eru þar til frestur til þess rennur út.

650 Kristjaníubúar hafa setið reglulega á rökstólum síðustu vikur án þess að komast að niðurstöðu. Ríkið hefur boðið að tryggja þeim húsnæði í þeim húsum sem fyrirhugað er að byggja á svæðinu. Enn eru nokkrir sem standa alfarið gegn tillögum ríkisstjórnarinnar, aðallega eiturlyfjasalarnir.

Formælandi Kristjaníubúa hefur þó sagt að þeir hafi komið sér saman um grundvallaratriði en eigi enn eftir að útfæra smáatriði í sameiginlegri yfirlýsingu.

Tilboð ríkisins er háð því að Kristjaníubúar dragi til baka lögsókn á hendur ríkinu þar sem þess er krafist að hefðarréttur þeirra til að búa á svæðinu í óbreyttri mynd verði staðfestur.

Ríkið hefur sem fyrr segir gefið frest til 1. apríl og þá verða íbúarnir að hafa ákveðið sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×