Erlent

600 fórust í átökum í Kongó

Jósef Kabíla forseti
Jósef Kabíla forseti AFP

Allt að 600 fórust í átökum í síðustu viku í Kinshasa höfuðborg lýðveldisins Kongó. Fólkið lést í átökum á milli hermanna og liðsmanna stjórnarandstöðusveita. Jósef Kabíla forseti segir að um valdaránstilraun hafi verið að ræða. Sendifulltrúar Evrópusambandsins í landinu segja að hersveitir forsetans hafi beitt óhóflegu valdi að fyrra bragði og það hafi leitt til átakanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×