Erlent

Einróma stuðningur NATO

Jaap de Hoop Scheffer. Enginn innri ágreiningur um Kosovo.
Jaap de Hoop Scheffer. Enginn innri ágreiningur um Kosovo. MYND/AP

Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hafa náð samstöðu sín í milli og styðja nú allar sem ein áætlun sérlegs erindreka Sameinuðu þjóðanna um framtíð Kosovo, en samkvæmt henni mun héraðið fá sjálfstæði frá Serbíu undir alþjóðlegu eftirliti. Frá þessu greindi Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, í gær.

Áætlun SÞ-erindrekans Marttis Ahtisaari var kynnt fyrir öryggisráði SÞ á mánudag. Í inngangi að áætluninni sagði Ahtisaari að „eina lausnin sem vænleg er til árangurs er að Kosovo fái sjálfstæði, undir alþjóðlegu eftirliti til að byrja með“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×