Erlent

Fleiri konur kveikja í sér

Konur bregða í auknum mæli á það ráð að kveikja í sér til að stytta sér aldur í Afganistan. Meðal líklegra orsaka þessa eru nauðganir og ofbeldi innan fjölskyldna og höft á frelsi til að festa ráð sitt samkvæmt eigin vali.

Þessi aðferð hefur orðið æ algengari eftir að hún vakti athygli í sjónvarpinu og vegna þess að konur telja þetta öruggan dauðdaga.

Afgönsk mannréttindasamtök greindu frá þessu, eftir að hafa talað við 800 aðstandendur kvenna sem frömdu slík sjálfsvíg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×