Erlent

Tveir halda 31 barni í gíslingu í Manila - hafa samþykkt að gefast upp

Oddur Ástráðsson skrifar

Lögregla í Manila hefur náð samkomulagi við mennina sem þar hafa haldið 31 barni og tveimur kennurum í gíslingu síðan snemma í morgun. Þeir munu gefast upp klukkan ellefu. Lögregla hefur ekki gefið upp smáatriði samkomulagsins.

Annar gíslatökumannana er eigandi barnaheimilisinsins, ekki er vitað hver hinn maðurinn er. Börnin hafa þurft að dúsa í rútunni í fimm klukkutíma núna en eru að sögn sjónarvotta við góða heilsu. Börnin eru á aldrinu fjögurra til sex ára. Fyrr í morgun var einu barni sleppt en það var lasið með sótthita.

Stjórmálamaður fór um borð í rútuna fyrr í morgun til að reyna að sannfæra gíslatökumennina um að gefast upp. Þeir sögðust ekki mundu gefast upp fyrr en þeir hefðu fengið loforð um að menntun 145 barna út fátækrahverfi væri tryggð. Þessar kröfur ítrekaði hann svo á útvarpsstöð í borginni.

Þúsundir vegfarenda fylgjast með gangi mála og enn virðast lögreglumenn ætla að reyna að beita friðsamlegum leiðum til að leysa úr stöðunni. Maðurinn hefur sagt að nægur matur sé í rútunni fyrir hann að halda sínu striki í tvo daga.

Lögregla telur að aðal gíslatökumaðurinn sé sá sami og tók tvo presta gíslingu síðla á níunda áratug síðustu aldar vegna deilna um kirkjubyggingu. Í því tilviki kom í ljós eftir að hann hafði flúið af vettvangi að vopnin sem hann notaði voru leikföng og engin hætta hafði verið á ferð.

Maðurinn bauð sig fram til þings fyrir sex árum án árangurs. Hann stofnaði barnaheimilið fyrir þremur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×