Erlent

Hicks játaði til þess eins að komast heim

Getty Images

David Hicks sem kallaður hefur verið ástralski talibaninn, játaði sakir fyrir rétti í Guantanamo til þess eins að komast heim til Ástralíu. Þetta staðhæfir faðir David. Nú eru lögmenn hans að leggja lokahönd á samkomulag um refsingu. Hicks hefur setið í Guantanamo-búðunum á Kúbu í fimm ár, síðan hann var handtekinn í Afganistan. Hann viðurkenndi fyrir réttarhöldum að hafa starfað með al-Kaída og barist með talibönum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×