Erlent

Frjálslyndir stjórna áfram

Jean Charest Fylkisleiðtogi frjálslyndra fagnar naumum sigri.
Jean Charest Fylkisleiðtogi frjálslyndra fagnar naumum sigri. MYND/AP

Frjálslyndi flokkurinn í Quebec-fylki í Kanada missti mikið fylgi í fylkisþingkosningum sem fram fóru þar á mánudag, en hélt þó naumlega stöðu sinni sem stærsti flokkurinn og mun því væntanlega skipa fylkisstjórnina áfram sem fyrsta minnihlutastjórnin í nærri 130 ára sögu Quebec-þings.

Frjálslyndir, undir forystu Jean Charest, fengu nú um þriðjung atkvæða en náðu 46 prósentum í síðustu kosningum. Aðskilnaðarsinnar í Parti Quebecois töpuðu einnig, fóru úr 33 prósentum í 28. Hástökkvari kosninganna var Action Democratique, popúlistaflokkur hægrimanna, sem jók fylgi sitt úr 18 í 31 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×