Erlent

Hátíðahöld í nýrri höfuðborg

Than Shwe. Leiðtogi herforingjastjórnarinnar á „Degi hersins“ í gær.
Than Shwe. Leiðtogi herforingjastjórnarinnar á „Degi hersins“ í gær. MYND/AP

Yfirmaður herforingjastjórnarinnar í Búrma (Myanmar) hét því í gær að halda hernum sterkum til að tryggja einingu landsins „svo það geti haldið ótrautt áfram á efnahagslegri og pólitískri framfarabraut“.

Than Shwe yfirhershöfðingi var eini ræðumaðurinn við hátíðahöld á „Degi hersins“ í nýrri höfuðborg landsins, sem erlendum blaðamönnum var í fyrsta sinn boðið að heimsækja af þessu tilefni. Nýja höfuðborgin, Naypyitaw, hefur verið byggð upp samkvæmt ákvörðun herforingjanna í ruddum frumskógi 460 km norður af gömlu höfuðborginni Rangún (Yangon).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×