Erlent

Reykingar við akstur bannaðar

Reykjandi ökumenn munu þurfa að greiða rúmlega tvöþúsund krónur í sekt sem telst rífleg upphæð þar um slóðir.
Reykjandi ökumenn munu þurfa að greiða rúmlega tvöþúsund krónur í sekt sem telst rífleg upphæð þar um slóðir. MYND/AFP

Bannað er að reykja undir stýri í höfuðborg Indlands, Nýju-Delí, samkvæmt úrskurði réttar í borginni. Er þetta talið í fyrsta sinn sem slíkt bann er sett á í heiminum.

Bannið er hluti af aðgerðaáætlun undir yfirskriftinni „Vegir í Nýju-Delí eru hættulegir mannslífum“. Einnig verður bannað að tala í farsíma undir stýri og umferðarsektir hækkaðar.

„Hvað sem dreifir athygli ökumanns er hættulegt. Mannshugurinn getur ekki gert tvo hluti samtímis,“ sagði yfirmaður umferðarmála í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×