Erlent

Börn frömdu 3.000 glæpi

Börn undir tíu ára aldri voru grunuð í nær þrjú þúsund sakamálum í Englandi og Wales í fyrra. Nær helmingur þessara glæpa, alls 1.300, tengdist skemmdarverkum eða íkveikjum.

Í Englandi og Wales eru börn undir tíu ára aldri ósakhæf en brotin eru engu að síður skráð af lögreglu. Alls voru 5,5 milljónir glæpa fólks á öllum aldri skráðir hjá lögreglu á sama tímabili.

„Þegar maður sér börn fara um eins og úlfahóp að brjóta af sér sýnir það mikilvægi þess að lækka sakhæfisaldurinn í 8 eða 9 ár,“ sagði enskur lögmaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×