Erlent

Flóttanaut deyr

Naut sem flúði eiganda sinn á nautgripasýningu í Minnesota í Bandaríkjunum féll niður og lést eftir að hafa skallað brunahana.

Nautið, sem vó tæp 800 kíló­grömm, hafði að sögn eiganda síns aldrei látið illa. Hann grunaði þó að bílferðin á hátíðina hefði komið nautinu úr jafnvægi.

Enginn slasaðist í látunum og brunahaninn skemmdist ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×