Erlent

Skógareldar að mestu slökktir

Nærri 200 þúsund hektarar af landi eyðilögðust.
Nærri 200 þúsund hektarar af landi eyðilögðust. MYND/AP

Þrír stærstu skógareldarnir, sem logað hafa í Grikklandi í tíu daga, hafa nú verið slökktir eða tökum hefur verið náð á þeim, þannig að ekki stafar hætta lengur af.

Í gær voru móðir og fjögur börn hennar jarðsungin, en þau fórust á flótta undan eldsvoðanum fyrir rúmri viku. Í gær lést á sjúkrahúsi í Grikklandi maður sem brenndist illa af völdum eldanna, og er þá tala látinna komin upp í 65.

Eldarnir eyðilögðu nærri 200 þúsund hektara af landi, aðallega skóglendi og ræktarlandi. Stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast ekki við með réttum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×