Beckham er réttborinn fyrirliði 18. ágúst 2007 08:15 David Beckham leiddi lið sitt á völlinn á miðvikudag. MYND/Getty
Landon Donovan, bandaríski landsliðsmaðurinn og ein helsta stjarna bandarísku atvinnumannadeildarinnar, hefur fært sínum nýja liðsfélaga David Beckham fyrirliðaarmbandið sem hann hefur borið síðustu ár. Donovan er heillaður af þeim áhrifum sem Beckham hefur haft á LA Galaxy frá því hann kom í sumar og segir hann réttborinn fyrirliða liðsins. Beckham bar fyrirliðaarmbandið í fyrsta sinn á miðvikudaginn þegar Galaxy vann 2-0 sigur á DC United. Beckham var í fyrsta sinn í byrjunarliði liðsins og skoraði annað marka liðsins. Beckham segir að Donovan hafi komið upp að sér á æfingu fyrir leikinn og óskað eftir samtali. „Ég ætla ekki að segja ykkur allt sem fór okkar á milli því þetta var mjög persónulegt en hann sagði að það yrði liðinu mikil upplyfting ef ég yrði fyrirliði. Ég var hrærður við að heyra þetta og lít á það sem mikinn heiður að taka við fyrirliðaarmbandinu," sagði Beckham. Donovan útskýrði einnig sína hlið á málinu. „Ég er ekki heimskur. Beckham hefur verið fyrirliði Englands, sem er eitt besta landslið heims. Hann er frábær leikmaður og einn sá besti í þessari deild. Það er ekki sérlega mikilvægt fyrir mig persónulega að vera fyrirliði því ég mun spila á nákvæmlega sama hátt og koma fram við liðsfélaga mína á sama hátt. Beckham er meiri leiðtogi og gerir allt til að vinna. Þannig leikmenn eiga að vera fyrirliðar." Bandaríski framherjinn bætti síðan við að það hefði verið unun að fylgjast með enska landsliðsmanninum í leiknum gegn DC. „Ég er búinn að horfa á aukaspyrnuna sem hann skoraði úr nokkrum sinnum á myndbandi. Þvílík snilld sem þetta var," sagði hann.
Fótbolti Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Tekinn við Portúgal og gæti stýrt Ronaldo á nýjan leik Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana N1-mótið: Jötunn sem þambar mjólk, frábær tilþrif og orðljótir mótherjar Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Árni Vilhjálms í Stjörnuna Manchester City kaupir efnilegan markvörð Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Uppgjör: Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0. Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks „Leikmenn skora mörk en liðið tekur sigurinn“ Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Tvær brauðsneiðar reyndust uppskriftin að fimm mörkum Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Wolfsburg með nýjustu fréttir af Eriksen Uppgjörið: FH - Þróttur R. 7-3 | Ída Marín kom FH á toppinn með fimm mörkum Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga María að gera Þóri að afa Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Ætlar að gefa frí ef England vinnur HM Sjá meira