Erlent

Lesbíur í felur að giftingu lokinni

Nígerísk kona, Aunty Maiduguri, sem „giftist“ fjórum konum, hefur farið í felur ásamt konunum. Samkvæmt sjaríalögum í landinu er samkynhneigð og hjónaband samkynhneigðra ólögleg og álitið alvarlegur glæpur. Samkynhneigð er einnig ólögleg samkvæmt hegningarlögum.

Maidugury gekk að eiga konurnar í leikhúsi í Kano-ríki síðustu helgi. Nokkrum dögum síðar var leikhúsið jafnað við jörðu.

Allar konurnar fæddust sem múslímar. Samkvæmt íslam má karlmaður giftast fjórum konum geti hann séð fyrir þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×