Erlent

Gagnrýna þing Bandaríkjanna

Ali al-Dabbagh talsmaður íraksstjórnar. 
Segir það senda röng skilaboð til uppreisnarmanna hverfi Bandaríkjaher of snemma á braut.
Ali al-Dabbagh talsmaður íraksstjórnar. Segir það senda röng skilaboð til uppreisnarmanna hverfi Bandaríkjaher of snemma á braut. MYND/AFP

Íraksstjórn gagnrýnir Bandaríkjaþing harðlega fyrir að hafa samþykkt frumvarp um að kalla bandarískan herafla heim frá Írak. Samkvæmt frumvarpinu hefst brottflutningur heraflans 1. október næstkomandi og skal lokið 31. mars árið 2008, að því er fréttavefur BBC greinir frá.

Talsmaður Íraksstjórnar, Ali al-Dabbagh, segir of snemmt að byrja að draga heraflann heim 1. október og að það „sendi röng skilaboð“ til vopnaðra uppreisnarmanna.

George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur lýst því yfir að hann muni beita neitunarvaldi á lagafrumvarpið. Þó að demókratar hafi meirihluta í báðum þingdeildum er atkvæðamagnið ekki nógu mikið til að fara framhjá neitunarvaldi forseta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×