Erlent

Varkárni í fyrstu kappræðunum

Átján mánuðir eru í að kosið verði um forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins.
Átján mánuðir eru í að kosið verði um forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins. MYND/AP

Frambjóðendurnir átta sem sækjast eftir forsetatilnefningu Demókrataflokksins mættust í fyrstu kappræðunum á fimmtudagskvöldið.

Varkárni einkenndi kappræðurnar og gengu hrósyrðin á víxl meðal keppinautanna þó að Hillary Clinton og Barack Obama, sem eru talin sigurstranglegust, hefðu fengið á sig nokkrar stungur.

Frambjóðendurnir vörðu mestum tíma sínum í að útskýra stefnu sína og hvernig þeir hygðust stjórna landinu fengju þeir til þess umboð. Allir sameinuðust þeir í gagnrýni sinni á núverandi forseta, repúblikann George W. Bush.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×