Erlent

Ætla að svara á viðeigandi hátt

Stjórnvöld í Rússlandi sögðust í gær ætla að svara bresku ríkisstjórninni á ákveðinn og viðeigandi hátt eftir að stjórnvöld á Englandi ákváðu að reka fjóra rússneska diplómata úr landi á mánudag. Ástæðan er sú að stjórnvöld í Rússlandi hafa neitað að framselja Andrei Lugovoi, meintan morðingja Alexanders Litvinenkos sem var drepinn í London í fyrra, til Bretlands.



Búist var við því að stjórnvöld í Moskvu myndu tilkynna það í gær hvernig þau ætluðu að svara Bretum. Ekki er víst að stjórnvöld í Moskvu svari með því að reka breska diplómata úr landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×