Erlent

Dauðadómur og ævilangtfangelsi fyrir þrælahald

Þessi kona vinnur hörðum höndum í einni af fjölmörgum múrsteinsverksmiðjum í Kína. Þar hefur fólki verið haldið í nauðungarvinnu.
Þessi kona vinnur hörðum höndum í einni af fjölmörgum múrsteinsverksmiðjum í Kína. Þar hefur fólki verið haldið í nauðungarvinnu. fréttablaðið/AFP

Forstjóri, verkstjóri og undirverkstjóri í kínversku múrsteinsbrennslufyrirtæki voru í gær dæmdir fyrir þrælahald og misþyrmingar á starfsfólki.



Verkstjórinn, Heng Tinghan, hlaut ævilangt fangelsi fyrir að hafa vísvitandi valdið fólki líkamsmeiðslum og haldið því föngnu með ólöglegum hætti. Hann hélt 34 starfsmönnum í þrældómi, þar af voru níu þroskahamlaðir. Við réttarhöldin kom fram að frá marsmánuði árið 2006 þar til í maí á þessu ári hafi nítján af verkamönnunum meiðst vegna barsmíða og einn látið lífið.



Einnig kom fram að starfsfólkið hafði mætt í vinnu klukkan fimm að morgni og oft ekki fengið að hætta fyrr en klukkan 23 að kvöldi. Fullyrt var að Heng hafi skipað undirverkstjórum sínum að berja „letingjana“ sem sýndu ekki nógan dugnað.



Einn undirverkstjóra Hengs, Zhao Yanbing, hlaut dauðadóm fyrir að berja einn verkamannanna, Liu Bao, svo illa að hann lét lífið. Zhao hafði áður viðurkennt að hafa barið þroskaheftan starfsmann með skóflu fyrir að sinna starfinu ekki nógu vel.



Þá var Wang Bingbing, forstjóri verksmiðjunnar, dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að hafa haldið fólki föngnu með ólöglegum hætti.

Dómarnir koma í kjölfar umfangsmikillar rannsóknar á þrælahaldi í múrsteinaverksmiðjum í kínverskum sveitahéruðum. Fjölmiðlar hófu að greina frá málinu eftir að fjöldi foreldra lýsti eftir börnum sínum sem þeir sögðu hafa verið rænt og send til vinnu við brennsluofna verksmiðjanna.

Kínverski kommúnistaflokkurinn segist hafa hafið herferð gegn þrælahaldi og nauðungarvinnu. Síðustu mánuði hafa tæplega þúsund manns hlotið frelsi úr slíkri ánauð fyrir tilstilli lögreglunnar.

Forstjórinn Wang Bingbing hlaut níu ára fangelsisdóm.fréttablaðið/ap


.

Tengdar fréttir

Komust úr þyrlunni áður en henni hvolfdi

Flak björgunarþyrlunnar TF-SIFJAR er nú geymt í flugskýli á vegum Rannsóknarnefndar flugslysa (RNF) eftir að því var bjargað í land aðfaranótt þriðjudags. RNF hefur tekið yfir forræði yfir flakinu af Landhelgisgæslunni (LHG) og vinnur að frumrannsókn slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×