Erlent

Næturfundur um Íraksmálið

Leiðtogi demókrata í öldungadeildinni.
Leiðtogi demókrata í öldungadeildinni. fréttablaðið/AP

Demókratar í öldungadeild Bandaríkjaþings bjuggu sig í gær undir langan og strangan þingfund um Íraksmálið, sem standa átti alla nóttina. Reiknað er með endanlegri atkvæðagreiðslu í deildinni í dag.



Demókratar, sem hafa nauman meirihluta í deildinni, höfðu einsett sér að fá samþykkt lög um að brotthvarf bandaríska hersins frá Írak hefjist eftir 120 daga og síðasti hermaðurinn verði farinn í apríl á næsta ári.



Sams konar frumvarp var samþykkt í fulltrúadeild fyrir stuttu, en George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur sagst staðráðinn í að beita neitunarvaldi sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×