Erlent

Undirbjuggu skotárás á skóla

Tveir unglingspiltar hafa verið handteknir vegna gruns um þeir hafi ætlað að framkvæma skotárás í Connetquot High School á Long Island í New York í apríl á næsta ári. Árásin var áformuð á sama degi og fjöldamorðin í Columbine árið 1999.



Drengirnir eru 15 og 17 ára gamlir og unnu saman á McDonald‘s stað í nágrenninu. Sá yngri er talinn hafa skipulagt árásina, en í dagbók hans fann lögregla hótanir um hryðjuverk. Yngri drengurinn hefur ekki enn verið ákærður, en sá sautján ára kom fyrir rétt á föstudag, þar sem hann lýsti yfir sakleysi sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×