Erlent

Bretar létta á fangelsunum

Meira en sautján hundruð föngum var sleppt úr breskum fangelsum í fyrstu viku neyðaráætlunar um að létta álag á yfirfullum fangelsum landsins.



Þetta eru fyrstu tölur sem birtast um áætlunina sem hófst 29. júní. Samkvæmt henni verða allt að 25.000 pláss losuð árlega í fangelsum. Tæplega 350 dæmdir ofbeldisglæpamenn voru meðal þeirra sem sleppt var allt að átján dögum fyrr.



Stjórnarandstædingar gagnrýndu stjórnvöld fyrir þessar aðgerðir sem þeir sögðu ógna öryggi almennings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×