Erlent

Heilagt naut hlýtur náðun

Dómari í Wales kvað upp þann úrskurð í gær að ekki skyldi slátra nautinu Shambo, sem er heilagt dýr í hindúaklaustrinu Skanda Vale í Wales. Nautið hefur greinst með nautaberkla og átti að slátra því af öryggisástæðum svo smit bærist hvorki í menn né önnur dýr.



Samkvæmt reglum um dýrahald í Wales ber að slátra berklaveikum nautum, en hindúarnir segja nautið heilagt í sínum huga og sé það veikt eigi að hjúkra því. Með því að slátra dýrinu sé verið að brjóta á rétti þeirra til að iðka trú sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×