Erlent

Ásakanir um gyðingahatur

Pólski presturinn Tadeusz Rydzyk, sem stýrir rammkaþólsku og þjóðernis-íhaldssinnuðu fjölmiðlaveldi í kring um útvarpsstöðina Radio Maryja og dagblaðið Nasz Dziennik, varðist í síðustu viku ásökunum um gyðingahatur eftir að upp á yfirborðið komu hljóðupptökur þar sem hann lætur andgyðingleg ummæli falla og kallar eiginkonu Póllandsforseta „norn“.



Ummælin voru birt í vikublaðinu Wprost, en þau eru úr upptöku af fyrirlestri sem Rydzyk hélt yfir nemendum í blaðamannaskóla sem hann stofnaði sjálfur í borginni Torun.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×